Go Back Email Link

Aspas brauðréttur

Ingredients
  

  • ½-1 stk Heilhveitibrauð Má hafa aðra gerð af brauði
  • 1 dós Campell's sveppasúpa
  • 1 dós Aspas og aspassafi (400gr)
  • 1 ½ dl Rjómi
  • 2 msk Majónes
  • 200 gr Skinka
  • 1 poki rifinn ostur

Instructions
 

  • Smyrjið stórt eldfast mót með olíu
  • Tætið brauðið í litla bita og setjið í botninn á forminu. Pressið svo aðeins brauðinu niður svo það sé pláss fyrir restina af hráefnunum
  • Hrærið saman í skál sveppasúpunni, rjómanum, majónesi og safanum af aspasinum
  • Brytjið aspasin og skinkuna í smá bita og blandið saman við blönduna
  • Hellið yfir brauðið og jafnið út ef þarf
  • Setjið rifinn ost ofaná
  • Setjið Töfrablönduna ofaná ostinn
  • Bakið við 175°c í 30-45 mín
  • Berið fram heitt