Bananabrauð úr brúnum bönunum
Brúnir banananar eru ekkert sérlega girnilegir til að grípa beint og borða. Þá er tilvalið að baka úr þeim bananabrauð. Deigið má líka setja í muffinsform, þá styttist bara bökunartíminn um nokkrar mínútur.
Prep Time 5 minutes mins
Cook Time 40 minutes mins
- 2 bollar Hveiti
- 1 bolli Sykur
- 4 stk Bananar, brúnir
- 1 tsk Matarsódi
- 1 tsk Eðalborðsalt
- 1 tsk Lyftiduft
- 1 stk egg
Hitið ofninn í 180°C
Smyrjið bökunarform með oliu eða bökunarspreyi
Blandið þurrefnunum saman í skál; hveiti, sykur, matarsóda, salti og lyftidufti. Blandið vel saman.
Afhýðið bananana og stappið saman í annari skál, þar til þeir verða að bananamauki.
Brjótið eggið út í skálina með bananamaukinu og blandið saman.
Hellið blautu efnunum saman við þurrefnin og blandið saman með sleikju.
Setjið deigið í smurt formið.
Bakið í 40 mínútur á 180°C
Best ylvolgt úr ofninum.
Brytjað súkkulaði saman við deigið býr til spariútgáfu.