Djöflaegg
Djöflaegg eru frábær á veisluborðið um páska. Hvort sem er á dögurðarborðið, sem forréttur eða einn af nokkrum smáréttum. Það þurfa ekki öll egg að vera úr súkkulaði. Djöflaegg má einnig nota sem skraut á brauðtertu, ef þú ert í stuði.
Prep Time 10 minutes mins
Cook Time 15 minutes mins
- 7 stk Egg
- 1 dl Mayonese
- 1 tsk Laukduft
- 1 tsk Paprika
Setjið vatn í pott og látið suðuna koma upp
Setjiið eggin í sjóðandi vatnið, lækkið hitann og látið sjóða í 9 mínútur
Kælið eggin undir rennandi vatni
Brjótið eggjaskurnina af eggjunum, varlega
Skerið eggin eftir endilöngu, setjið hvíturnar til hliðar og rauðurnar í aðra skál
Blandið saman við eggjarauðurnar mayonesi og kryddi
Eggjarauðuhræran er sett í sprautupoka og sprautað á eggjahvíturnar, fyllt upp í holurnar þar sem eggjarauðurnar voru áður
Raðað fallega á disk eða notað sem skraut á brauðtertur