Fiskibaka
Hér er stuttlýsing á uppskriftinni. Summary
Prep Time 10 minutes mins
Cook Time 15 minutes mins
Botn
- 150 gr hveiti
- 100 gr smjör eða 50 gr olía
- 1 stk egg
- smá Eðalsalt frá Prima
Fylling
- 600 gr soðinn fiskur að eigin vali
- 100 gr ferskur Blaðlaukur, frekar fínt skorinn
- 5 stk egg
- 1 dl rjómi eða mjólk
- 100-150 gr rifinn ostur
- 2 tsk Eðalsalt frá Prima
- ½ tsk Svartur pipar frá Prima
- ½-1 dl Graslaukur eða Steinselja
Undirbúningur
byrjið á að búa til botninn og kælið deigið í ísskáp
sjóðið fiskinn í 10 mín en tilvalið er að nota afganga
hitið ofninn í 180°c
skerið niður blaðlauk og graslauk eða steinselju
Takið fiskinn upp úr pottinum, og leyfið honum að kólna aðeins á meðan þið búið til fyllinguna
Smyrjið stórt hringlaga eldfast mót með olíu
Botn
setjið hveiti og salt í skál og myljið smjörið útí
bætið við eggi og hrærið þangað til þið eruð komin með mjúkt deig
Kælið degið í ísskáp í ½ klst
fletjið út deigið og setjið í botninn á vel smurðu eldföstu móti. Reynið að passa að þykktin sé svipuð allstaðar og deigið nái aðeins upp á hliðarnar
Fylling
hrærið saman egg, rjóma (mjólk), rifna ostinum , pipar og salt
bætið við söxuðum graslauk eða steinselju
Leggið fiskinn ofaná deigið í forminu
Stráið söxuðum blaðlauk yfir, hann má líka hræra útí eggjahræruna
Hellið eggjahrærunni svo jafnt yfir fiskinn
Bakið á 180°c í 20-25 mín eða þangað til bakan er orðin fallega brún
Berið fram með fersku saltati og hrísgrjónum