Kartöflur á rósmarínbeði
Ilmurinn úr eldhúsinu þegar kartöflur eru bakaðar á rósmarínbeði er svo lokkandi að þú mátt til með að prófa þessa uppskrift. Ofnbakaðar kartöflur sem passa með sunnudagssteikinni, með grillmat og eru eitthvað sem þú getur vel boðið óvæntum vegan gesti við matarborðið.
Prep Time 4 minutes mins
Cook Time 40 minutes mins
- 1 kg Kartöflur
- ½ dl olía
- Salt
- Pipar
- 1 búnt Rósmarín, ferskt
Hitið ofninn í 180°C
Þvoið og þerrið kartöflurnar
Skerið kartöflurnar í báta eftir endilöngu, fyrst einu sinni og svo aftur. Setjið í skál
Veltið kartöflunum upp úr olíu, salti og pipar
Leggið rósmarín neðst í eldfast mót og dreifið úr kartöflunum þar ofaná
Bakið í 40 mín þar til kartöflurnar eru gullinbrúnar