Kryddað berjachutney á ostabakkann
Það er ekkert mál að gera sitt eigið chutney og láta það bragðast nákvæmlega eins og manni þykir best. Þetta berjachutney er kryddað með engifer og túrmerik, nóg til þess að gefa sultunni nýjan keim.
Prep Time 5 minutes mins
Cook Time 12 minutes mins
- 300 gr Berjablanda
- 2 msk Sítrónusafi
- 100 gr Sykur
- ½ tsk Túrmerik
- ½ tsk Engifer
- 1 msk Sultuhleypir
- 1 msk Sykur
Sjóðið saman í potti berjablönduna og sítrónusafa í 5 mín
Blandið saman sykri, túrmerik og engifer og bætið saman við, látið sjóða við vægan hita í 10 mín
Maukið með töfrasprota, ef þið viljið fá mýkri áferð
Blandið saman sultuhleypi og sykri, blandið saman við og látið sjóða í 2 mín til viðbótar