Krydduð páskaterta með bananasmjörkremi og súkkulaðieggjum
Kyddin í botnunum vega upp á móti sætu bananasmjörkreminu og saman tónar þetta vel á móti súkkulaðieggjunum sem prýða kökuna. Sannkölluð veisluterta á páskaborðið.
Prep Time 1 hour hr
Cook Time 1 hour hr
- 3 stk Egg
- 2 dl Sykur
- 3 dl Hveiti
- 1 tsk Lyftiduft
- ¾ tsk Matarsódi
- ½ tsk Salt
- 2 tsk Kanill
- 1 tsk Múskat
- ½ tsk Negull
- 1 1/4 dl Olia
Smjörkrem
- 300 gr Smjör
- 500 gr Flórsykur
- 10 dropar Bananabragðefni
- 5 dropar Gulur matarlitur
Forhitið ofninn í 175°C
Þeytið saman egg og sykur
Blandið öllum þurrefnum saman í skál og setjið til hliðar
Blandið olíunni saman við eggjaþeytinginn með hrærivélinni
Takið skálina, blandið saman blautefnum og þurrefnum með sleif, hrærið ekki
Setjið í 2 smurð form og bakið. Kælið botnana
Smjörkremið
Þeytið saman smjör og flórsykur, mjög vel
Setjið smjörkrem milli botnanna og utan á alla kökuna
Skreytið með litlum súkkulaðieggjum