Sætkartöflu- og gulrótasúpa með kókosmjólk
Matarmikil og saðsöm grænmetissúpa með sætri kartöflu, gulrótum og kókosmjólk. Vegan, já, þar sem engar dýraafurðir koma við sögu.
Prep Time 10 minutes mins
Cook Time 30 minutes mins
- 1 stk Laukur
- 2 msk Olía, til steikingar
Krydd
- 3 tsk Hvítlauksduft
- 1 tsk Engifer
- 1 tsk Kóríander
- ½ tsk Cumin
- ¼ tsk Chili
- 2 stk Súputeningar
Grænmeti
- 1 stk Sæt kartafla
- 4 stk Gulrætur
Vökvi
- 400 ml Kókosmjólk
- 750 ml Vatn
Afhýðið og skerið grænmeti, lauk, gulrætur, sætu kartöfluna
Mælið kryddin, setjið saman í kryddblöndu og setjið til hliðar
Í pottinum sem súpan er soðin í, setjið olíu og steikið laukinn þar til hann verður glær
Bætið þá við grænmetinu, gulrótunum og sætu kartöflunni
Blandið kryddblöndunni saman við og steikið léttilega
Bæti við vatni og súputeningum. Fáið upp suðu, lækkið hitann og látið súpuna malla í 20 mín
Maukið súpuna með töfrasprota, alveg ef þú vilt en það má alveg skilja eftir nokkra bita.
Bætið að lokum kókosmjólkinni saman við og náið suðunni upp aftur.
Þegar súpan er borin fram má setja á hana topp af rjómaosti eða rifnum osti. Mjög gott að hafa maísflögur með í stað þess að bera fram brauð.
