Skúffukaka
Klassísk skúffukaka sem er auðvelt að baka og allir elska að borða. Stór uppskrift sem passar vel í stóra ofnskúffu, svo í minni skúffur eða skúffukökuform er vel hægt að gera hálfa uppskrift.
Prep Time 5 minutes mins
Cook Time 25 minutes mins
- 3 ½ bolli Hveiti
- 3 bollar Sykur
- 5 tsk Lyftiduft
- 1 tsk Matarsódi frá Flóru
- 8 msk Kakó frá Flóru
- 1 tsk Eðalborðsalt frá Prima
- 1 bolli Smjör eða smjörlíki (bráðið)
- 2 bollar Mjólk
- 4 stk Egg
- 2 tsk Vanillusykur frá Flóru
Krem
- 125 gr Flórsykur
- 125 gr Smjör (bráðið)
- 2 msk Kakó frá Flóru
- 1 stk Egg
- 1 tsk Vanillusykur frá Flóru
Smyrjið ofnskúffu form með olíu
Hrærið saman sykur og egg þangað til létt og ljóst
Blandið saman þurrefnum og bætið útí
Bræðið smjörið, bætið við mjólkinni og setjið saman við
Hrærið allt vel saman og hellið í smurða ofnskúffuna
Bakað við 175°c í 25 mín
Að lokum er kökunni leyft aðeins að kólna.
Útbúið kremið á kökuna
Skreytið með kökuskrautinu
Borðið með bestu lyst, best með glasi af ískaldri mjólk