Soðið sett í pott og komið upp suðu
bætið útí grænmetistenging, magn fer eftir hversu bragðmikið soðið er
Hrærið vel saman og látið teninginn leysast vel upp. Lækið undir á minnsta hita og þykkið með maizenamjöli. Það tekur smá stund fyrir sósuna að þykkna þannig að ekki bæta of miklu mjöli við í einu.
hrærið vel og bætið við aðeins meira maizenamjöli ef þarf.
Setjið útí nokkra dropa af sósulit og hrærið vel saman. Passið að setja ekki of mikið til að sósan verði ekki svört.
Í lokin er sett smá svetta af rjóma og sósan hituð upp að suðu. Passið að það sjóði ekki.
þessi sósa er góð með öllum kjötréttum og hægt er að nota vatn í stað soðs ef vill. Þá er á móti notaðir fleiri súputengingar.