Skerið fiskinn í bita
útbúið eina skál með hrærðu eggi og aðra með raspi og kryddi blandað saman
Skerið laukinn niður, gróft eða smátt eftir smekk
Byrjið á að steikja laukinn með olíu á pönnu
Þegar laukurinn er byrjaður að brúnast aðeins þá er hann tekinn af pönnunni og lagður til hliðar (fer á fiskinn í lokin)
dýfið fisknum fyrst í eggið svo í raspið og setjið á sjóðandi heita pönnuna, bætið við olíu ef þarf
Steikið fiskinn á báðum hliðum
Stráið lauknum jafnt yfir fiskinn
Berið fram á pönnunni með soðnum kartöflum og fersku salati