Vilko orlydeig - djúpsteiktur fiskur
Djúpsteiktur fiskur í Vilko orlydeigi með frönskum, sósu og salati er frábær máltíð og geggjað að gera heima fyrir alla fjölskylduna.
Prep Time 30 minutes mins
Cook Time 30 minutes mins
- 800 gr Þorskur
- 1 pk Orlydeig frá Vilko
- 2 L Olia, til steikingar
- 1 msk Sítrónupipar
- 1 msk Eðalborðsalt frá Prima
Blandið Vilko orlydeig skv. Leiðbeiningum á pakkanum, kryddið með sítrónupipar og látið standa í 20-30 mín.
Skerið þorskinn í hæfilega bita
Hitið olíu til steikingar í víðum potti
Veltið fiskinum, fyrst upp úr hveiti og þá upp úr orlydeiginu
Steikið nokkra bita í einu, snúið þeim nokkrum sinnum meðan þeir eru í olíunni
Takið bitana úr olíunni, leggið t.d. Á dagblað og saltið eftir smekk með Eðalborðsalti frá Prima
Berið fram með frönskum, sósu, salati og ferskri sítrónu í bátum