Hrísgrjón með ertum
Tilbreyting við hefðbundin soðin hrísgrjón eru hrísgrjón þar sem þú bætir við frosnum ertum. Má bragðbæta með smjöri eða rjómaosti, salti og pipar, en má líka alveg sleppa. Góð með kjúklingi, fiski og pottréttum.
Prep Time 2 minutes mins
Cook Time 24 minutes mins
- 1 glas Hrísgrjón
- 2 glös Vatn
- 1 glas Ertur, frosnar
- 1 msk Smjör eða rjómaostur (má sleppa)
- ½ tsk Eðalborðsalt
- ½ tsk Svartur pipar
Setjið hrísgrjónin og vatnið í pott, látið suðuna koma upp
Lækkið hitann og látið sjóða í 12 mínútur, eða þar til vatnið er allt gufað upp
Setjið frosnu erturnar saman við hrísgrjónin, blandið saman og setjið lok á pottinn, látið standa í aðrar 12 mín
Smakkið til með 1 msk af smjöri eða rjómaosti, salti og pipar