Kjúklingur með appelsínu og mangó
Ofnbakaðar kjúklingabringur með appelsínu og mangó ásamt ljúffengri kryddblöndu. Einnig hægt að nota kjúklingalundir eða kjúklingalærkjöt. Uppskriftin er einföld, allt sett í eldfast mót og bakað.
Prep Time 5 minutes mins
Cook Time 30 minutes mins
- 5 stk Kjúklingabringur
- 2 msk Olía
- 1 tsk Laukduft
- 1 tsk Hvítlauksduft
- 1 tsk Karrý
- 1 tsk Papríka
- 1 tsk Turmerik
- 1 dós Froosh með appelsínu og mangó
Hitið ofninn í 200°C
Leggið kjúklingabringurnar í eldfast mót, makið þær með olíunni
Blandið kryddblöndunni saman í skál og sáldrið yfir kjúklingabringurnar á báðum hliðum
Hellið safanum yfir kjúklingabringurnar
Bakið í 30 mínútur.