Ofnbakað grænmeti
Sæt kartafla, gulrætur og rauðlaukur eru skorin og krydduð. Bakað í ofni og hrært nokkrum sinnum. Ofnbakað grænmeti sem hægt er að bera fram með kjöti, fiski og kjúklingi. Hvaða grænmeti sem þú vilt er svo hægt að bæta í uppskriftina.
Prep Time 10 minutes mins
Cook Time 30 minutes mins
- 1 stk Sæt kartafla
- 5 stk Gulrætur (eða amk 1 á mann)
- 3 stk Rauðlaukur
- 3 msk Olia
- 1 tsk Eðalborðsalt
- 1 tsk Svartur pipar
Hitið ofninn í 200°C
Afhýðið sætu kartöfluna og skerið langsum í 1 cm þykkar sneiðar, þá þversum í 2 cm bita
Skerið gulræturnar í munnbita
Afhýðið laukinn og skerið í fjórðunga
Setjið allt grænmetið í eldfast mót, veltið upp úr olíunni og kryddið með salti og pipar
Bakið grænmetið í 30 mínútur, hrærið í nokkrum sinnum á meðan.